
HITTUMST.
KÖSTUM.
KEPPUM.
Góður félagsskapur. Skemmtileg keppni.
Pílukast fyrir þig — hvort sem þú ert að byrja eða kominn með reynslu.

BRAUTIR
MEISTARAR
DEILDARINNAR.
Við fögnum árangri keppenda Píludeildar Völsungs.

Deildarkeppni Völsungs
2026 · Karlar
- 1. sætiBrynjúlfur Sigurðsson
- 2. sætiSævar Örn Guðmundsson
- 3. sætiÞröstur Þór Sigurðsson
2026 · Konur
- 1. sætiÍris Atladóttir
- 2. sætiÞórun Anna Magnúsdóttir
- 3. sætiHelga Björg Pálmadóttir
2025 · Karlar
- 1. sætiBrynjúlfur Sigurðsson
- 2. sætiGuðmundur Þráinn Kristjánsson
- 3. sætiDenis Slots
STYRKTARAÐILAR
Takk fyrir að styðja pílustarfið okkar.










KEPPNISTREYJUR
FÉLAGSINS.
Hvítar, grænar og svartar keppnistreyjur Píludeildar Völsungs.
Smelltu á treyju til að skoða hana stærri.
Grænar og svartar keppnistreyjur félagsins eru til sölu á 7.000 kr. stykkið.
ÆFINGAR.
Aðstaða deildarinnar er alla jafnan opin á eftirfarandi tímum.
Láverðir
Kast á daginn
Opið kastkvöld
Félagsskapur við píluspjaldið
Konukast
Pílukast og góður félagsskapur
Láverðir
Kast á daginn
Opið kastkvöld
Endum vikuna á góðum köstum
Barna- og unglingakast: Verður auglýst síðar.
OKKAR DEILD.OKKAR KAST.OKKAR FÉLAGSSKAPUR.
Píludeild Völsungs — þar sem allir eru velkomnir, köstin telja og félagsskapurinn skiptir máli.
NÝJUSTU FRÉTTIR.

Þórunn Anna sigurvegari í kvennariðlinum
Þórunn Anna vann alla þrjá leiki sína og alla níu leggina í kvennariðlinum á fyrsta kvöldi Framsýnarmótaraðarinnar.
Lesa fréttina ↗
Skráning í Píludeild Völsungs í fullum gangi
Skráning í Píludeild Völsungs er í fullum gangi og við hvetjum bæði núverandi félaga og nýja iðkendur til að skrá sig í félagið.
Lesa fréttina ↗
Píludeild Völsungs færir nýrri frístunda- og félagsmiðstöð gjöf
Tvö píluspjöld og tilheyrandi búnaður fyrir unga fólkið. Trésmiðjan Rein fær kærar þakkir fyrir aðstoð við uppsetninguna.
Lesa fréttina ↗
Framsýnarmótaröðin hefst föstudaginn 16. október
Fyrsta umferð Framsýnarmótaraðarinnar fer fram föstudaginn 16. október. Húsið opnar kl. 18:30 og mótið hefst kl. 19:30. Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 15. október.
Lesa fréttina ↗Sævar Örn Guðmundsson meistari í 501 árið 2025

Sævar Örn Guðmundsson varð meistari í 501 hjá Píludeild Völsungs árið 2025. Við óskum Sævari innilega til hamingju með titilinn og þökkum honum fyrir þátttökuna í starfi deildarinnar.
Sjá meistara deildarinnar ↗FRÉTTASAFN.
Allar fréttir deildarinnar á einum stað.

Þórunn Anna sigurvegari í kvennariðlinum
Þórunn Anna vann alla þrjá leiki sína og alla níu leggina í kvennariðlinum á fyrsta kvöldi Framsýnarmótaraðarinnar.

Skráning í Píludeild Völsungs í fullum gangi
Skráning í Píludeild Völsungs er í fullum gangi og við hvetjum bæði núverandi félaga og nýja iðkendur til að skrá sig í félagið.

Píludeild Völsungs færir nýrri frístunda- og félagsmiðstöð gjöf
Tvö píluspjöld og tilheyrandi búnaður fyrir unga fólkið. Trésmiðjan Rein fær kærar þakkir fyrir aðstoð við uppsetninguna.

Framsýnarmótaröðin hefst föstudaginn 16. október
Fyrsta umferð Framsýnarmótaraðarinnar fer fram föstudaginn 16. október. Húsið opnar kl. 18:30 og mótið hefst kl. 19:30. Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 15. október.

Það er hollt að stunda pílu með stuðningi stéttarfélaganna
Félagsmenn í Framsýn og Þingiðn geta nýtt íþrótta- og heilsueflingarstyrki upp í æfingagjöld Píludeildar Völsungs og fengið allt að 50% niðurgreiðslu.

Nýjar vörur væntanlegar í búð Píludeildar Völsungs
Félagsmenn geta keypt pílur, fylgihluti og annan varning í búð deildarinnar, sem er staðsett í félagsaðstöðunni.

Starf vetrarins í brennidepli á félagsfundi Píludeildar Völsungs
Félagsfundur Píludeildar Völsungs var haldinn í Vallarhúsinu á Húsavík miðvikudaginn 7. október 2026. Jónas Halldór Friðriksson, formaður deildarinnar, var fundarstjóri. Farið var yfir starf liðins vetrar, fyrirhugað mótahald og skipulag starfsins fram undan.

VEL HEPPNAÐ KONUKVÖLD.
Við héldum kvennapílumót og tókst kvöldið frábærlega. Mætingin var mjög góð og átta tveggja manna lið tóku þátt. Stemningin var frábær og keppnisskapið víða mikið.

Úrslit deildarkeppni Völsungs 2025–2026
Brynjúlfur Sigurðsson og Íris Atladóttir sigruðu í deildarkeppni Völsungs eftir skemmtilegan keppnisvetur.

Snorri og Þröstur sigruðu á páskamóti Völsungs
Mikil stemning og spennandi leikir á páskamóti Píludeildar Völsungs í apríl 2026. Helga og Sædís sigruðu í B-úrslitum.

SjallyPally 2026
Frábærar myndir frá SjallyPally 2026, teknar á vegum píludeildar Þórs. Mótið var magnað og allt til fyrirmyndar hjá Þór.

Snorri og Sævar fulltrúar Völsungs í Flórídana
Snorri Gunnlaugsson og Sævar Örn Guðmundsson voru fulltrúar Píludeildar Völsungs í Flórídana 9. nóvember 2025.

Bóban Jovic sigraði Gumma Lilla í mögnuðum úrslitaleik
Bóban Jovic vann Gumma Lilla 3–2 í A-úrslitum á Money in, money out móti í júní 2025. Meðalskor Bóbans var 59 og Gumma Lilla 57.

MEISTARAFLOKKUR VÖLSUNGS Í HEIMSÓKN Í PÍLUSALINN!
Árið 2025 fengum við góða gesti í pílusal Völsungs þegar meistaraflokkur Völsungs í fótbolta mætti og skemmti sér konunglega.

Sævar Örn Guðmundsson meistari í 501 árið 2025
Sævar Örn Guðmundsson varð meistari í 501 hjá Píludeild Völsungs árið 2025. Við óskum Sævari innilega til hamingju með titilinn og þökkum honum fyrir þátttökuna í starfi deildarinnar.
Engar fréttir fundust. Prófaðu annað leitarorð.
Það er hollt að stunda pílu með stuðningi stéttarfélaganna

Pílusalur Völsungs í sundlaugarkjallaranum á Húsavík er opinn flesta daga. Forsvarsmenn Píludeildar Völsungs eru duglegir að birta upplýsingar um opnunartíma á Facebook-síðu deildarinnar.
Félagsgjöld deildarinnar eru:
- 14–18 ára: 15.000 kr.
- 18 ára og eldri: frá 15.000 kr.
- Stakt kvöld: 2.000 kr.
Félagsmenn deildarinnar sem eru í Framsýn og Þingiðn geta nýtt íþrótta- og heilsueflingarstyrki félaganna upp í æfingagjöldin og fengið þannig allt að 50% niðurgreiðslu. Styrkurinn til félagsmanna fer eftir greiddu félagsgjaldi.
Píludeild Völsungs er ánægð með samstarfið við Framsýn og Þingiðn og hefur komið þakklæti sínu á framfæri við félögin.
Stéttarfélögin hvetja alla áhugasama til að mæta í sundlaugarkjallarann á Húsavík og prófa þessa mögnuðu íþrótt. Það á ekki síst við um félagsmenn sem geta nýtt styrki stéttarfélaganna til að taka þátt í pílustarfinu.
Nýjar vörur væntanlegar í búð Píludeildar Völsungs

Félagsmenn geta keypt pílur, fylgihluti og annan varning í búð deildarinnar, sem er staðsett í félagsaðstöðunni.
Nýjar vörur eru væntanlegar og því tilvalið að kíkja við næst þegar mætt er á æfingu!
Starf vetrarins í brennidepli á félagsfundi Píludeildar Völsungs

Félagsfundur Píludeildar Völsungs var haldinn í Vallarhúsinu á Húsavík miðvikudaginn 7. október 2026. Jónas Halldór Friðriksson, formaður deildarinnar, var fundarstjóri. Farið var yfir starf liðins vetrar, fyrirhugað mótahald og skipulag starfsins fram undan.
Á starfsvetrinum 2025–2026 greiddu 57 einstaklingar félagsgjald, 33 tóku þátt í deildarkeppninni og 12 kepptu á mótum á vegum Íslenska pílukastsambandsins. Fyrirtæki og félagasamtök nýttu einnig hópatíma í pílusalnum og reglulegt starf var hjá Lávörðum og í kvennakasti. Öll píluspjöld í aðstöðunni voru endurnýjuð á tímabilinu.
Framsýnarmótaröðin er fyrirhuguð sem stór þáttur í starfi vetrarins 2026–2027. Í drögum að mótadagatali er gert ráð fyrir sex umferðum frá október til maí, þeirri fyrstu 16. október. Einnig voru kynnt áform um jólamót, páskamót og Mærudagsmót.
Þá var rædd hugmynd að opnu Húsavíkurmóti í pílu laugardaginn 10. apríl 2027 í tengslum við 100 ára afmæli Völsungs. Hugmyndin ber vinnuheitið „Heimamenn Open – 100 ára afmælismót“ og kallar á frekari undirbúning.
Félagsgjöld og verkaskipting stjórnar og nefnda voru meðal dagskrárliða. Stjórn deildarinnar skipa Jónas Halldór Friðriksson formaður, Guðmundur Þráinn Kristjánsson gjaldkeri, Sævar Örn Guðmundsson ritari, Davíð Jónsson sem fer með viðhaldsmál og meðstjórnendurnir Þröstur Þór Sigurðsson, Þórunn Anna Magnúsdóttir og Snorri Gunnlaugsson.
Hreiðar Þór Jósteinsson er formaður húsnefndar. Með honum starfa Brynjúlfur Sigurðsson, Gunnar Jóhannsson, Sigmundur Arnar Jósteinsson og Guðmundur Þráinn Kristjánsson. Nefndin heldur utan um þrif og opnanir aðstöðunnar.
Mótanefnd skipa Sævar Örn Guðmundsson, Jónas Halldór Friðriksson, Snorri Gunnlaugsson og Sigmundur Arnar Jósteinsson. Guðmundur Þráinn Kristjánsson er jafnframt upplýsinga- og fréttafulltrúi deildarinnar.
Á fundinum var lögð áhersla á að félagsmenn gætu lagt sitt af mörkum eftir getu, bæði við umsjón aðstöðunnar og framkvæmd móta.
Þórunn Anna sigurvegari í kvennariðlinum

Þórunn Anna Magnúsdóttir fór ósigruð í gegnum kvennariðilinn á fyrsta kvöldi Framsýnarmótaraðarinnar hjá Píludeild Völsungs. Hún vann alla þrjá leiki sína og alla níu leggina — glæsilegur árangur!
Helga Björg Pálmadóttir varð önnur með tvo sigra og sex unna leggi. Kristjana E. Gunnarsdóttir varð þriðja með einn sigur og Sædís Sævarsdóttir fjórða.
Þórunn Anna var einnig með hæsta þriggja píla meðalskor riðilsins, 36,56, en Helga Björg fylgdi á eftir með 35,31.
Til hamingju með árangurinn og takk fyrir kvöldið, allar fjórar! 💚🎯
Úrslit og tölfræði Framsýnarmótaraðarinnar ↗Skráning í Píludeild Völsungs í fullum gangi

Skráning í Píludeild Völsungs er í fullum gangi og við hvetjum bæði núverandi félaga og nýja iðkendur til að skrá sig í félagið.
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í pílukasti eða hefur spilað lengi, þá ertu velkomin í hópinn. Pílukast er skemmtileg íþrótt þar sem einbeiting, nákvæmni og góður félagsskapur fara saman.
Með skráningu styður þú við starf deildarinnar og hjálpar okkur að efla pílukast á Húsavík.
Vertu með í skemmtilegum félagsskap hjá Píludeild Völsungs!
Skrá mig í félagið ↗Píludeild Völsungs færir nýrri frístunda- og félagsmiðstöð gjöf

Í tilefni af opnun nýju frístunda- og félagsmiðstöðvarinnar ákvað Píludeild Völsungs að gefa tvö píluspjöld og tilheyrandi búnað svo yngra fólkið okkar geti skemmt sér við pílukast.
Með gjöfinni vill deildin styðja við öflugt frístundastarf og gefa unga fólkinu tækifæri til að kynnast skemmtilegri íþrótt sem reynir á einbeitingu, nákvæmni og þolinmæði.
Við viljum færa Trésmiðjunni Rein kærar þakkir fyrir aðstoðina við uppsetningu búnaðarins.
Píludeild Völsungs óskar unga fólkinu og starfsfólki innilega til hamingju með nýju aðstöðuna og vonar að gjöfin eigi eftir að veita þeim margar ánægjustundir.

Framsýnarmótaröðin hefst föstudaginn 16. október

Þá er komið að því! Fyrsta umferð í Framsýnarmótaröð Píludeildar Völsungs fer fram föstudaginn 16. október 2026 í pílusal deildarinnar.
Húsið opnar kl. 18:30 og mótið hefst kl. 19:30.
Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 15. október. Skráningarhlekk er að finna við mótatilkynninguna á Facebook hjá deildinni.
Sama fyrirkomulag verður á deildinni og undanfarin ár. Allir geta verið með og raðað er í deildir eftir styrkleika. Keppt er í 501, með einföldum inn og tvöföldum út. Fjögur bestu kvöldin telja af sex.
Umferðir vetrarins eru 16. október, 27. nóvember og 11. desember 2026, og 22. janúar, 12. febrúar og 7. maí 2027.
Þátttökugjald er 8.000 kr. fyrir öll kvöldin eða 2.000 kr. fyrir stakt kvöld. Hægt er að greiða á staðnum eða með millifærslu.
Bankaupplýsingar til millifærslu
Píludeild Völsungs
Reikningsnúmer: 0567-14-000433
Kennitala: 710269-6379
Settu nafn keppanda og „Framsýnarmótaröðin“ í skýringu með millifærslunni.
Öll velkomin — sjáumst í pílusalnum!
Snorri og Þröstur sigruðu á páskamóti Völsungs
Páskamót Píludeildar Völsungs fór fram í apríl 2026 við mikla stemningu og fjölmarga spennandi leiki.
Snorri og Þröstur stóðu uppi sem sigurvegarar
Í úrslitakeppninni mættust Billi og Jón Helgi annars vegar Sigga og Gesti, en Snorri og Þröstur mættu Gumma Lilla og Sævari. Billi og Jón Helgi unnu sinn leik og Snorri og Þröstur sigruðu einnig, þannig að þessi tvö lið mættust í úrslitaleiknum.
Úrslitaleikurinn var æsispennandi og hart barist. Að lokum stóðu Snorri og Þröstur uppi sem sigurvegarar páskamótsins.
Helga og Sædís unnu B-úrslitin
Í B-úrslitum mættust Helga og Sædís annars vegar og Þórunn og Fannar hins vegar. Þar fór fram spennandi leikur sem endaði með sigri Helgu og Sædísar.
Aukaverðlaun
- Þröstur átti fyrsta 180 kast mótsins.
- Jónas var fyrstur til að taka út á bullinu.
- Gunnar náði „double-double“ og hlaut verðlaun fyrir það.
Frábær dagur hjá Píludeild Völsungs og mikil stemning allan tímann! Sören Gestsson var líka flottur að vanda.
Við óskum sigurvegurunum til hamingju og þökkum öllum þátttakendum fyrir skemmtilegt mót!
Úrslit deildarkeppni Völsungs 2025–2026
Deildarkeppni Völsungs lauk með skemmtilegu lokakvöldi á föstudagskvöldið, þar sem endanleg úrslit vetrarins réðust.
Brynjúlfur Sigurðsson varð efstur í karlaflokki og Íris Atladóttir í kvennaflokki. Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með góðan árangur og þökkum fyrir skemmtilega keppni og góðan félagsskap í vetur.
Lokastaða í karlaflokki
- Brynjúlfur Sigurðsson
- Sævar Örn Guðmundsson
- Þröstur Þór Sigurðsson
Lokastaða í kvennaflokki
- Íris Atladóttir
- Þórunn Anna Magnúsdóttir
- Helga Björg Pálmadóttir
Píludeild Völsungs þakkar öllum sem tóku þátt í deildarkeppninni í vetur.
Bóban Jovic sigraði Gumma Lilla í mögnuðum úrslitaleik
Þeir félagar Bóban Jovic og Gummi Lilla mættust í A-úrslitum á „Money in, money out“ móti í júní 2025. Úrslitaleikurinn var magnaður og spennandi, en Bóban hafði að lokum betur, 3–2.
Bóban var með 59 í meðalskor og Gummi Lilla með 57. Jafn og skemmtilegur leikur hjá þeim félögum!
Við óskum Bóban til hamingju með sigurinn og báðum keppendum með góðan árangur.
Snorri og Sævar fulltrúar Völsungs í Flórídana
Píludeild Völsungs átti tvo flotta fulltrúa í Flórídana sunnudaginn 9. nóvember 2025: Snorra Gunnlaugsson og Sævar Örn Guðmundsson.
Þeir hófu leik klukkan 10:30 og hvatti deildin félaga og stuðningsmenn til að fylgjast með þeim og styðja þá í keppninni.
Það er ánægjulegt að sjá félaga úr Píludeild Völsungs taka þátt í mótum og keppa undir merkjum deildarinnar. Áfram Píludeild Völsungs!
SjallyPally 2026
Frábærar myndir frá SjallyPally 2026, teknar á vegum píludeildar Þórs. Mótið var magnað og allt til fyrirmyndar hjá Þór.
Við þökkum píludeild Þórs fyrir frábært mót og flottar myndir sem fanga stemninguna.
Myndir: Á vegum píludeildar Þórs.
FRAMSÝNAR
MÓTARÖÐIN.
Sex kvöld, sex umferðir. Hér sérðu dagskrá vetrarins hjá Píludeild Völsungs.
Skráningarupplýsingar á Facebook ↗Húsið opnar 18:30 · Mótið hefst 19:30
Skráningu í fyrstu umferð lýkur á miðnætti fimmtudaginn 15. október. Skráningarhlekkur er við mótatilkynninguna á Facebook hjá deildinni.
Allar umferðir vetrarins
- 1. umferðNæst
- 2. umferð
- 3. umferð
- 4. umferð
- 5. umferð
- 6. umferð
Þátttökugjald
8.000 kr. fyrir öll kvöldin
2.000 kr. fyrir stakt kvöld · Greitt á staðnum
Fyrirkomulag
Allir geta verið með. Raðað er í deildir eftir styrkleika: 1., 2. og 3. deild og kvennadeild ef skráning leyfir. Keppt er í 501 — einfaldur inn, tvöfaldur út. Fjögur bestu kvöldin telja af sex.
Pílusalur Völsungs · Sundlaugarkjallarinn á Húsavík.
Framsýn stéttarfélag er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar.
HÓPAR
Í PÍLUSALNUM.
Skemmtilegur hópur í heimsókn
Skemmtilegur hópur mætti í pílusalinn í maí 2026 og skemmti sér mjög vel.
Keppnisskapið var mikið og við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og fyrir að kynnast þessari skemmtilegu íþrótt. Píla er sannarlega fyrir alla!
MEISTARAFLOKKUR VÖLSUNGS
Í HEIMSÓKN Í PÍLUSALINN!
Árið 2025 fengum við góða gesti í pílusal Völsungs þegar meistaraflokkur Völsungs í fótbolta mætti og skemmti sér konunglega.
Það er alltaf gaman að fá góðan hóp í heimsókn og svona hópefli styrkir bæði liðsheild og stemningu. Við vonum að þau hafi haft gaman af og þau eru alltaf velkomin aftur!
MÓT SEM ER LOKIÐ.
Mærudagsmótið ↗
VEL HEPPNAÐ
KONUKVÖLD.
Við héldum kvennapílumót og tókst kvöldið frábærlega. Mætingin var mjög góð og átta tveggja manna lið tóku þátt. Stemningin var frábær og keppnisskapið víða mikið.
Öll lið fengu vinninga og einnig voru dregnir út ýmsir aukavinningar. Við þökkum styrktaraðilum kærlega fyrir vinningana.
Við vonumst til að sjá sem flestar í salnum á miðvikudögum í vetur! 👌
MÆRUDAGS
MÓTIÐ.
Skemmtilegu Mærudagsmóti er lokið. Við þökkum Kjarnafæði Norðlenska kærlega fyrir stuðninginn við mótið og öllum þátttakendum fyrir frábært kvöld!
Úrslit mótsins
1. sæti: Kári Vagn Birkirsson og Íris Atladóttir.
2. sæti: Sævar Örn Guðmundsson og Andri Snær.
Forsetabikarinn
1. sæti: Guðlaugur og Sandra Dögg Guðlaugsdóttir.
2. sæti: Sigmundur Arnar Jósteinsson og Gunnar Sigurður Jósteinsson.
Útdráttarverðlaun
Pétur Rúðrik Guðmundsson og Sunna Mjöll Bjarnadóttir hlutu útdráttarverðlaunin.
Takk fyrir frábært og skemmtilegt kvöld! 🎯
MEIRA EN
GOTT KAST.
Við hittumst í pílusalnum.
Píludeild Völsungs varð hluti af Almenningsíþróttadeild árið 2024. Heimavöllurinn er í sundlaugarkjallaranum á Húsavík, með inngang að norðanverðu.
Hér er pláss fyrir einbeitingu, framfarir og félagsskap. Kynntu þér starfið, finndu hentugan tíma og hafðu samband ef þú vilt byrja.
Píludeildin hjá Völsungi ↗Komdu við.
Laugabrekka 2, Húsavík
Sundlaugarkjallarinn
Gengið inn að norðan
HAFÐU SAMBANDvolsungur@volsungur.is ↗Facebook-hópur deildarinnar ↗
OKKAR FÓLK.
OKKAR STEMNING.
Myndir og myndband úr starfi deildarinnar.
Smelltu á mynd til að skoða hana stærri.
Stemningin í salnum.
Spilaðu myndbandið frá deildinni.
SAGA
DEILDARINNAR.
Saga Píludeildar Völsungs á Húsavík.
Frá bílskúrum í öflugt félagsstarf
Píludeild Völsungs varð til þegar píluáhugafólk á Húsavík ákvað að sameina krafta sína. Pílukast hafði áður verið stundað í heimahúsum, bílskúrum og félagsmiðstöðvum, en hópurinn sá tækifæri til að byggja upp sameiginlega aðstöðu og skipulagt starf.
Áhugafundur sem haldinn var að frumkvæði hópsins fékk betri mætingu en búist var við. Í framhaldi af honum var ákveðið að stofna píludeild innan Völsungs. Deildin varð hluti af Almenningsíþróttadeild félagsins árið 2024.
Aðstaðan byggð upp af félögunum
Leit að húsnæði leiddi hópinn í norðurenda sundlaugarkjallarans á Húsavík. Rýmið hafði áður verið nýtt sem geymsla, en félagar deildarinnar breyttu því í um 70 fermetra píluaðstöðu með átta píluspjöldum, lýsingu og brautum.
Norðurþing styrkti uppbygginguna um eina milljón króna. Styrkurinn fór í efniskostnað og annan kostnað við framkvæmdirnar, en félagar unnu handtökin í sjálfboðavinnu. Sameiginlegt átak og vinnusemi lögðu þannig grunninn að heimavelli deildarinnar.
Góður búnaður og góður félagsskapur
Jónas Halldór Friðriksson lýsti markmiðinu í viðtali við Vikublaðið: að skapa aðstöðu þar sem fólk gæti komið saman og kastað á góðan búnað við betri aðstæður en heima í bílskúr.
Í viðtalinu sagði Jónas stefnt að formlegri opnun föstudaginn 15. nóvember. Boðuð hafði verið koma landsliðsþjálfara til að kynna píluíþróttina og gefa áhugasömum tækifæri til að kynnast starfinu og skrá sig í deildina.
Píla fyrir fleiri
Uppbyggingin á Húsavík átti sér stað á sama tíma og áhugi á pílukasti óx víða um land. Jónas taldi árangur íslenskra pílukastara og athyglina sem Luke Littler vakti á heimsmeistaramótinu eiga þátt í þessum vexti.
Grunnurinn að starfi Píludeildar Völsungs er félagsskapur, góð aðstaða og tækifæri til að æfa og keppa. Frá fyrstu köstunum í bílskúrunum hefur sameiginlegur áhugi félaganna verið drifkrafturinn í uppbyggingu deildarinnar.
Byggt á innsendu viðtali Vikublaðsins við Jónas Halldór Friðriksson og upplýsingum um deildina á vef Völsungs. Frásögn af undirbúningi opnunar lýsir stöðunni þegar viðtalið var tekið.
Skoða myndasafnið ↗STJÓRN
OG NEFNDIR.
Stjórn deildarinnar
Formaður
Jónas Halldór Friðriksson
Gjaldkeri
Guðmundur Þráinn Kristjánsson
Ritari
Sævar Örn Guðmundsson
Viðhaldsmál
Davíð Jónsson
Meðstjórnandi
Þröstur Þór Sigurðsson
Meðstjórnandi
Þórunn Anna Magnúsdóttir
Meðstjórnandi
Snorri Gunnlaugsson
Húsnefnd
Formaður húsnefndar
Hreiðar Þór Jósteinsson
Nefndarmaður
Brynjúlfur Sigurðsson
Nefndarmaður
Gunnar Jóhannsson
Nefndarmaður
Sigmundur Arnar Jósteinsson
Nefndarmaður
Guðmundur Þráinn Kristjánsson
Mótanefnd
Nefndarmaður
Sævar Örn Guðmundsson
Nefndarmaður
Jónas Halldór Friðriksson
Nefndarmaður
Snorri Gunnlaugsson
Nefndarmaður
Sigmundur Arnar Jósteinsson
Upplýsingar og fréttir
Upplýsinga- og fréttafulltrúi
Guðmundur Þráinn Kristjánsson
SKRÁNING
Í FÉLAGIÐ.
Vertu með í Píludeild Völsungs.
Skráning og greiðsla
Skráðu þig í Abler
Opnaðu verslun Völsungs í Abler, veldu Píludeild og skráningu fyrir tímabilið 2026–2027. Fylgdu síðan skrefunum til að ganga frá greiðslu.
Skrá mig í Abler ↗Félagsgjald 2026–2027
Félagsgjöld
- 18 ára og eldri
- 15.000 kr.
- Yngri en 18 ára
- 10.000 kr.
Veldu réttan aldurshóp í Abler til að skrá þig og greiða félagsgjaldið.
LEIGA
Á SALNUM.
Áhugi á að leigja pílusalinn fyrir hópatíma?
Hópatímar
Komið saman í pílusalnum
Hafið samband við Jónas Halldór Friðriksson til að fá upplýsingar um leigu á salnum, lausa tíma og verð fyrir hópinn.
Tengiliður vegna leigu
Jónas Halldór Friðriksson
Formaður Píludeildar Völsungs
BANKAUPPLÝSINGAR
Viltu styrkja deildina?
Með stuðningi þínum hjálpar þú okkur að efla pílustarfið í Píludeild Völsungs. Þú getur lagt inn frjálsan styrk á reikning deildarinnar.
- Reikningsnúmer
- 0567-14-000433
- Kennitala
- 710269-6379
Takk fyrir stuðninginn!
